Verkefnið Energí og trú miðar að því að efla og hvetja ungt fólk á Suðurnesjum til sjálfstæðis og athafna með fjölbreyttum námskeiðum og stuðningi. Hafist verður handa um mánaðarmótin ágúst/september.


Forsaga
Hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar teknar voru saman tölur frá Hjálparstarfi kirkjunnar fyrir árið 2010 og fram kom að 70% þeirra sem sækja um aðstoð til kirkjunnar eru á aldrinum 18-29 ára. Helmingur þess hóps er á aldrinum 18 og 19 ára. Augljóslega er því mikil þörf til staðar og brýnt að bregðast við sem fyrst til þess að fyrirbyggja vítahring atvinnuleysis, fátæktar og vonleysis sem þegar sjást greinileg merki um.
Nauðsynlegt er því að ná til þessa hóps. Gefa þarf fólki von um betri framtíð og byggja upp styrkleika þess svo að það eigi auðveldara með að fóta sig í lífinu og sé ekki einungis þiggjendur heldur gefi einnig til baka með hæfileikum sínum og framlagi.


Haustið 2010 fór Keflavíkurkirkja af stað með verkefnið Skref fyrir skref þar sem boðið var upp á fjögur fræðslukvöld fyrir skjólstæðinga Hjálparstarfs kirkjunnar (HK) og Velferðarsjóðsins. Tvenns konar lærdóm má draga af reynslunni sem af þessu verkefni hlaust. Annars vegar það, að vel má byggja upp markvissa og innihaldsríka fræðslu og eru mörg tækifæri í boði til þess arna. Hins vegar kom í ljós að erfiðlega gekk að ná til þeirra sem raunverulega hefðu þurft á slíkri fræðslu að halda. Nánar má lesa um verkefnið hér: http://tru.is/pistlar/2010/12/stu%C3%B0ningur-fra-grasrotinni-velfer%C3%B0arsjo%C3%B0ur-a-su%C3%B0urnesjum


Framkvæmd
Rannsóknir sýna að líðan ungs fólks sem fer í nám að loknum grunnskóla er marktækt betri en hinna. Eitt meginmarkmiðið með dagskrá þessari er að tengja þau verkefni sem boðið er upp á við skólana með það að marki að námskeið þessi geti orðið til þess að þau leggi fyrir sig frekara nám.
Verkefni það sem hér um ræðir er mun umfangsmeira en það sem að ofan er greint frá. Miklu máli skiptir að vinnubrögð séu markviss og skipulögð. Skipa þarf verkefnisstjóra sem heldur utan um alla verkferla, fjármál og er tengiliður við þá fjölmörgu sem koma til með að starfa innan ramma þess.
Verkefnið verði unnið í eftirtöldum skrefum:

Eftirtalin námskeið verða í boði:

1. Listefli á ljósanótt/Skapandi forysta: Í ágúst verður listamönnum á Suðurnesjum safnað saman undir stjórn Sigrúnar Sævarsdóttur Griffith sem stýrir verkefninu með það að marki að virkja ungt fólk til tónlistarsköpunar og ljóðagerðar. Þar verður tónlistarmönnum og áhugafólki stefnt saman. Sigrún æfir hópana bæði hvorn í sínu lagi og svo saman. Húsnæði 88hússins verður nýtt til æfinga. Bílskúrsbandabragur verður á tónleikunum sem tengist þeirri tónlistarmenningu sem einkennt hefur Suðurnesin auk þess sem það undirstrikar þá sterku tengingu við grasrótina sem verkefnið felur í sér.
Afraksturinn verður fluttur undir merkjum Energí og trú á ljósanótt og yrði þar með „grand opening“ á þessu umfangsmikla verkefni. Boðskapurinn er máttur listarinnar, bjartsýninnar og grasrótarinnar til þess að lyfta einstaklingum og hópum upp og koma þeim á betri stað í lífinu.

2. Hærra, ég og þú.
  Í október verður efnt til ráðstefnu í kirkjunni undir yfirskriftinni Hærra ég og þú. Markmiðið er að kalla eftir hugmyndum ungs fólks um næstu skref til framfara hér á svæðinu. Tengsl eru á milli þessara tveggja viðburða en m.a. segir  Sigrún frá hugmyndum um skapandi forystu og þátttakendur í Listefli á ljósanótt lýsa upplifun sinni af verkefninu. Sýnt verður frá verkefninu á ráðstefnunni og e.t.v. flutt atriði úr dagskránni.

3. Frumkvöðlaverkstæði: Efnt verður til vinnustofa þar sem unnið er með hugmyndir ungmennanna með það að marki að þau verði hluti af dagskrá Energí og trú á tímabilinu 2011 til 2013.

4. Ungir foreldrar.  Kennsla í meðferð fjármuna, skipulagningu innkaupa, ráðdeild, markmiðssetningu ofl. sem lýtur að því að þroskast til sjálfstæðis. Þátttakendur verði hvattir til þess að horfa til framtíðar og vinna með drauma sína og væntingar.

5. Ungbarnasöngur Gæðastund fyrir foreldra og ungabörn með söng og sameiginlegri máltíð (í beinu framhaldi af samverunni ungir foreldrar).

6. Pactla til þess að rjúfa félagslega einangrun. Hópar ungmenna koma saman, bæði þau sem eru virk og þau sem eiga undir högg að sækja. Saman vinna hóparnir krefjandi verkefni, sem lýkur með ævintýraferð. Dagskráin er metin til eininga við grunnskólana í Reykjanesbæ sem valgrein.
 
7. Ég vil lifa lífinu  Kennsla í meðferð fjármuna, skipulagningu innkaupa, ráðdeild, markmiðssetningu ofl. sem lýtur að því að þroskast til sjálfstæðis. Þátttakendur verði hvattir til þess að horfa til framtíðar og vinna með drauma sína og væntingar.

8. Bílskúrsband í bítlabænum. Aðstaða sköpuð fyrir ungmenni sem vilja stofna hljómsveit og læra meira um tónlist. Samstarf verði haft við tónlistarfólk frá Suðurnesjum um fræðslu og ráðgjöf í þessum efnum. Kannaðir verði möguleikar á hljóðfæraleigu eða skiptimarkaði.

9. Ten Sing er verkefni á vegum KFUM og KFUK fyrir ungt fólk  með það að marki að efla hæfileika til listsköpunar og tjáningar.
10. Viltu vita meira um Guð?  Alfa námskeið fyrir ungmenni. Boðið verður upp á ungmennakvöld þar sem ungt fólk kemur sama og fræðist um Biblíuna og kristna trú með aðferðum Alfa-námskeiðanna.


 
Gagnrýnið mat verður lagt á námskeiðin og skila þátttakendur matslistum þar sem þeir lýsa því hversu árangursríkt námið hefur verið. Byggt verður á þeim niðurstöðum þegar námskeið verða endurtekin. Horfa má til þess hvort unnt verður að starfa í samvinnu við háskóla að slíku mati, en það gæti verið verkefni nemenda til BA eða MA náms