Sunnudagaskólinn í Keflavíkurkirkju er alla sunnudaga kl. 11:00. Börnin koma saman inni í kirkju og taka þátt í upphafi guðsþjónustunnar. Því næst halda þau inn í safnaðarheimilið á meðan dýrðarsöngnurinn er sunginn, en Keflavíkurkirkja á sitt eigið dýrðarsöngs/sunnudagaskólalag! Að lokinni guðsþjónustu og sunnudagaskóla eiga allir, sem vilja, borðsamfélag í stærri sal safnaðarheimilisins þar sem sjálfboðaliðar bera fram súpu og brauð sem þeir hafa matreitt eða veitingamenn á svæðinu hafa gefið. Frjáls framlög eru fyrir súpuna.
Fjölskylduguðsþjónusta er fyrsta sunnudag hvers mánaðar en þann dag er einnig kvöldmessa. Þá fer allt barnastarfið fram inni í kirkjuskipinu. Þeir sem vilja taka þátt í hefðbundu helgihaldi geta þá komið um kvöldið.
Sunnudagaskólinn hefst haustönnina með grilli og gaman í garði kirkjunnar á Ljósanætursunnudegi, fyrsta sunnudag í september. Sunnudagaskólinn er svo gott sem samfellt alla haustönnina fram að jólun en hefð hefur skapast fyrir því að hafa barnastund, sem við köllum Jólin allsstaðar, á aðfangadag kl. 16:00. Einnig er barnasamvera á öðrum í páskum.
Undantekning frá þessu er fyrsti sunnudagur í janúar, þegar guðsþjónusta er haldin án þátttöku barnanna. Vorönnin stendur því frá öðrum degi janúarmánaðar og fram að „Degi barnsins“, sem er síðasti sunnudagur í maí. Þá er hefð að ganga á söguslóðir kirkjunnar í gamla bænum og sjálfboðaliðar við kirkjuna standa fyrir kirkjumarkaði. Sunnudagskólinn í Keflavíkurkirkju nær því frá fyrsta sunnudegi í september fram til síðasta sunnudags maímánaðar.
Sunnudagaskólinn fer ekki í frí á meðan fermingum stendur, að loknum páskum. Starfið er hins vegar brotið upp með því að hafa samverur í KFUM og KFUK húsinu. Einnig er hópnum boðið á sérstaka bíósýningu í Sambíóunum í Keflavík.
Efnið fyrir sunnudagaskólann er fengið frá Kirkjuhúsinu. Einnig semjum við okkar eigið efni. Alla sunnudaga eru biblíusögurnar sýndar á loðmyndum sem keyptar voru í Bandaríkjunum. Brúðurnar Rebbi, Konni og Ragga rokk eru tíðir gestir. Góð reynsla er af notkun efnis frá fræðslusviði Biskupsstofu og er það jákvætt að þau kalla eftir athugsemdum og hugmyndum frá starfsfólki barna- og æskulýðsstarfs um efnið. Í því sambandi höfum við komið þeirri ósk á framfæri að efnið mætti fylgja betur kirkjuárinu, t.d. Biblíusaga eða frásögn sem á vel við á Allraheilagramessu. Við notumst mikið við efnisveitu kirkjunnar og fögnum því verkfæri sem sparar okkur kaup á heftum og gefur góðar hugmyndir. Jákvætt er að heyra að leiðtogum KFUM og KFUK er bent á að nýta sér gagnabanka efnisveitunnar.
Æskulýðsfulltrúi Keflavíkurkirkju ber ábyrgð á sunnudagaskólanum og starfar í honum að jafnaði hvern sunnudag. Auk æskulýðsfulltrúa eru tveir launaðir leiðtogar, þau Jón Árni Jóhannsson, sem spilar á gítar, og Sigurbjört Kristinsdóttir, leikskólakennari sem hefur sinnt leiðtogastarfi í KFUK í áraraðir. Auk þeirra eru leiðtogar sem útskrifuðust í Farskóla leiðtogaefna Þjóðkirkjunnar sl. sumar. Þeir leiðtogar starfa í sjálfboðaliðavinnu, spila á fiðlu, píanó og stunda söngnám. Prestar Keflavíkurkirkju taka þátt í sunnudagaskólanum, gjarnan í formi brúðuleiks eða með biblíusögufrásögn. Prestarnir koma að jafnaði 4-5 sinnum hvora önnina en auk þess leysa þeir æskulýðsfulltrúa af í sunnudagaskólanum, ef þess þarf. Prestar og sóknarnefnd leggja mikla áherslu á að leiðtogar sunnudagaskólans spili á hljóðfæri þar sem tónlistin er stór þáttur barnastarfsins. Þó verður að viðurkennast að enginn af prestum Keflavíkurkirkju spilar á hljóðfæri ;-)
Til þess að veita sunnudagskólanum aðhald ber æskulýðsfulltrúi ábyrgð á æskulýðsnefnd, sem saman stendur af foreldrum og öðrum sem sækja sunnudagaskólans. Markmið og hlutverk æskulýðsnefndar er að styðja við sunnudagskólastarfið, leiða fjáröflun, koma með hugmyndir og veita aðhald.
Nokkrar slóðir:
Dagur barnsins 2010:
http://www.keflavikurkirkja.is/vidburdir/58/Default.aspx
http://www.visir.is/kirkjumarkadur-til-styrktar-velferdarsjodi/article/2009336806366
Keflavíkurkirkja á ljósanótt 2009:
http://www.kirkjan.is/frett/2009/09/9386
Frétt í Víkurfréttum haustið 2006:
http://www.vf.is/Vidskipti/28830/default.aspx