Upplýsingar vegna fermingarfræðslu
Utanbókarlærdómur fermingarbarna
Dagskrá fermingarfræðslunnar má nálgast hér.
Þau sem ekki hafa nú þegar skráð börnin sín eru beðin um að að hafa samband við prestana, koma í Kirkjulund og greiða staðfestingargjald og fá afhendar upplýsingar og dagskrá vetrarins. Staðfestingargjaldið er 8000 kr. en það mætir hluta kostnaðar við Vatnaskógarferð, námsefni og kyrtlaleigu. Söfnuðurinn tekur þátt í þessum kostnaði.
Tengiliðir
Fræðslan er í höndum presta Keflavíkurkirkju og geta foreldrar og fermingarbörn snúið sér til þeirra ef spurningar vakna eða ef eitthvað þarf að ræða:
Erla Guðmundsdóttir, erla@keflavikurkirkja.is s. 8492194
Sigfús B. Ingvason, sigfus@keflavikurkirkja.is s. 8973845
Skúli S. Ólafsson, skuli@keflavikurkirkja.is, s. 8466714
Námsefnið
Námsefni vetrarins er Nýja testamentið, þar sem farið verður í dæmisögur Jesú og aðrar frásagnir guðspjallanna af lífi Jesú. Hátíðir ársins verða og til umræðu sem og saga Keflavíkurkirkju. Fjallað verður um bænina og kristið siðferði og hjálparstarf en fermingarbörnin munu m.a. safna fyrir systkinum sínum í Afríku í nóvember.
Utanbókarlærdómurinn verður á sínum stað, en eins og síðasta vetur. Börnin læra:
Faðir vor
Trúarjátninguna
Tvöfalda kærleiksboðorðið
Gullnu regluna
Einnig þurfa börnin að kunna góð skil á sálmunum, Ó, faðir gjör mig lítið ljós (nr. 507 í sálmabókinni) og Son Guðs ertu með sanni (nr. 56).
Upphafið og raunar einn af hápunktum fræðslunnar er ferðin í Vatnaskóg. Strákarnir fara 5-7/9 og stelpurnar 12-14/9.
Mætingarskylda
Börnin mæti í alla fræðslutíma. Því til viðbótar sæki þau:
6 almennar messur (sunnudagar kl. 11:00)
2 fjölskyldumessur (fyrsta sunnudag hvers mánaðar kl. 11:00)
2 KFUM og KFUK fundir (KFUM fundir alla mánudaga kl. 20-22 og KFUK fundir alla miðvikudaga kl. 20-22)
Merkt er við börnin í anddyri kirkjunnar er þau mæta til messu. Ef þau mæta í aðra kirkju þá komi þau með undirskrift og stimpil. Ef forföll verða í messu eða fræðslu þarf að standa skil á verkefnum og mæta í viðtöl hjá prestunum.
Annað
Kostnaður fyrir fræðsluna, skv. gjaldskrá dóms- og kirkjumálaráðuneytisins er kr. 9.300,- Helmingur greiðist fyrir áramót en hinn helmingurinn fyrir fermingu. Reikningur er sendur í heimabanka.
Einnig þarf að greiða kr. 8.000,- til safnaðar og rennur það til hluta af kostnaði vegna Vatnaskógarferðar, námsefnis og kyrtlaleigu Það greiðist við skráningu.
Foreldrafundir verða þriðjudaginn 20. september kl. 20 í Kirkjulundi og þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20 í Kirkjulundi.
Fermingarfræðsla fyrir foreldra!
Fjögur fimmtudagskvöld í haust verður boðið upp á fermingarfræðslu fyrir foreldra þar sem þau fá kynni af ýmsum hliðum kristinnar trúar. Prestarnir sjá um fræðsluna og er fólk hvatt til þess að nýta sér þessa þjónustu enda fer fermingarfræðslan líka fram á heimilinu. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt skrái sig á nefangið erla@keflavikurkirkja.is
Fermingardagar 2012
Pálmasunnudagur, 1. apríl frjálst
1. s.d. e. páska 15. apríl
Holtaskóli kl. 11:00
Holtaskóli kl. 14:00
2. s.d. e .páska 22. apríl
Heiðarskóli kl. 11:00 8AÓ
Heiðarskóli kl. 14:00 8 ÍÁ
3. s.d. e. páska 29. apríl
Myllubakkaskóli kl. 11:00
Heiðarskóli 14:00 8 ÞG
Hvítasunna, 27. maí frjálst
Almennt eru fermingardagar frjálsir en sá bekkur sem er á undan í stafrófinu (t.d 8AB) fermist kl. 11:00 en sá bekkur sem kemur á eftir (t.d. 8ÆÖ) er kl. 14:00.